{"product_id":"jolakottur-fyrir-hraunkisurnar-a-bruso","title":"Jólaköttur fyrir Hraunkisurnar á Brúsó","description":"\u003cp\u003eÉg hef verið að gefa ansi mörgum kisum hér í hrauninu og við Eddi nágranni kynntumst vel í gegnum þetta sjálfboðastarf. Það var einhvernveginn sjálfsagt hjá okkur því hér í hrauninu var aragrúi af villiköttum sem höfðu fjölgað sér hratt og enginn bar ábyrgð á eins og er víða um land. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta eru oftast afkvæmi ógeldra heimiliskatta sem hafa gotið kettlingum úti og leita í mannabyggð eftir fæðu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg og Börkur höfum sinnt þónokkrum kisum hér síðustu 10 árin í það minnsta og nú búa 3-4 í litlum kofa í garðinum sem er rafmagnskynntur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMig langaði að búa til vöru til styrktar þessu einstaklings starfi okkar sem væri eyrnamerktur villiköttur en það er aðferð félagasamtaka sem koma að dýravelferð Villikatta og er kölluð \u003cstrong\u003eTNR Trap-Neuter-Return\u003c\/strong\u003e, Veiða\/ gelda \/ sleppa. Þessi aðferð er notuð svo kisurnar þekkist á merkingunni og séu ekki endurtekið veiddar í búr eftir að búið er að gelda þær en það er eina leiðin til að hefta fjölgun kattanna og sporna við að kettlingar fæðist úti í náttúrunni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFlestar kisurnar hér eru eyrnamerktar og fá að eyða ævinni hjá okkur í hrauninu og því við hæfi að kisi væri merktur á eyra til að minna okkur á mikilvægi þess að passa heimilisdýrin okkar og passa að þau lendi ekki á vergangi ógeld. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁgóðinn af sölunni fer í að halda áfram þessu mikilvæga hlutverki okkar hér á Brúsastöðum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinfalt, hann fer í mat og rafmagn og um leið kannski gleður einhvern um jólin sem fær kisu í eða utan á jólapakka :) \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGylltur og rauður borði fylgir með og stærðin er 7 cm \u003c\/p\u003e","brand":"Krista Design","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68302107017401,"sku":null,"price":750.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0305\/8460\/2755\/files\/70b0635b-3744-489f-8a2c-b20ee74fa0cd_44f3675f-eafe-42b9-91fc-cd9f3ab9f8e4.jpg?v=1794356729","url":"https:\/\/kristadesign.myshopify.com\/products\/jolakottur-fyrir-hraunkisurnar-a-bruso","provider":"KristaDesign","version":"1.0","type":"link"}