{"product_id":"maja-og-saengurkrilin","title":"Maja og sængurkrílin","description":"\u003cp\u003e\u003cem\u003eFyrir 33 árum þá skrifaði ég þessa sögu handa elstu dóttur minni Mekkín. Hún lá í skúffu þar til núna því útgefendur hjá Ævintýri.is buðu mér að gefa hana út.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eÉg hef eignast 4 barnabörn síðan sagan varð fyrst til og langaði mig að aðlaga hana að nútímanum og ört stækkandi veröld sem er bæði spennandi og flókin í senn.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eMeð því að kenna ungum okkar á skemmtilegan hátt að anda sig í gegnum ýmis konar líðan þá getur lífið orðið einfaldara. Svo eru nokkrir umræðupunktar í bókinni sem gætu verið hjálplegir fyrir okkur fullorðna fólkið að ræða um við börnin. Eins getum við sem eldri erum mögulega nýtt okkur slökunaræfingarnar í leiðinni og breytt okkur í soðið spagettí.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eMeð bestu kveðju, María Krista Hreiðarsdóttir, höfundur! Vá hvað það er spennandi að skrifa, höfundur.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\"Maja á fimm ára afmæli og fær sæng í afmælisgjöf frá Kidda frænda. Ekki beint spennandi gjöf … þar til nóttin kemur. Þegar Maja getur ekki sofnað af því að hausinn er á fullu vakna sængurkrílin: Hugi, Dreyma, Örvi, Uggi, Pirri og Glóa – lítil loðin kríli sem eru alveg eins og tilfinningarnar okkar.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHvert kríli kennir Maju æfingu sem hjálpar þegar hugurinn ærslast: blómaöndun, blöðruöndun, kanínuöndun, sofandi björn, skjaldbökuöndun og spagettíæfinguna hennar ömmu. Einföld verkfæri sem börn geta gripið til þegar þau eru æst, pirruð, hrædd eða eiga erfitt með að róa sig.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÍ bókinni eru líka felumyndir þar sem krílin fela sig og aftast er farið yfir hvaða tilfinningu hvert kríli stendur fyrir.\"\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Krista Design","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68036242669753,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0305\/8460\/2755\/files\/att.FGbk7bMipARAsT4tu15xHeNAFcn9BOOkOUI_6UDqvCU.jpg?v=1793320436","url":"https:\/\/kristadesign.myshopify.com\/products\/maja-og-saengurkrilin","provider":"KristaDesign","version":"1.0","type":"link"}