Nýjar vörur

Lífsnisti - silfur

Ný nisti eru komin úr höfðinu mínu en að þessu sinni er ég að vinna með falleg boðorð sem er gott að hafa í huga í lífsins önn. 

Lifa- Njóta- Elska og Næra er eitthvað sem við ættum öll að iðka og því er tilvalið að bera slík lífsins orð á brjósti sér til að minna sig á mikilvægi þeirra. Væmið ? Já en það er allt í lagi, lífið er allskonar og við eigum að njóta þess að vera til og vera nákvæmlega eins og viljum vera. Lífið er núna, njótum !!

 

Nistin eru bæði í gylltu og silfur og með stillanlegri keðju svo hægt er að lengja úr 40 cm í 45 cm s.s. minni keðjan með steininum. 

Það eru 3 litlir steinar í hringnum sjálfum og svo annar stærri hringur í stöku nisti sem er fast við. Fínleg og sæt úr ryðfríu húðuðu stáli.