Skilmálar - vefverslun
Skilmálar og viðskiptakjör
1. Almenn ákvæði
Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í gegnum netverslun Krista Design. Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.
2. Verð og greiðslur
Öll verð eru birt með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
Komi upp augljós mistök í verðlagningu eða upplýsingagjöf um vöru áskilur Krista Design sér rétt til að leiðrétta slík mistök áður en pöntun er afgreidd. Þetta gildir þó ekki ef kaupanda mátti ekki vera ljóst að um mistök væri að ræða.
3. Afhending
Afhendingartími fer eftir birgðastöðu og sendingaraðferð hverju sinni.
Ef tafir verða á afhendingu verður kaupanda tilkynnt um það eins fljótt og auðið er.
4. Réttur til að falla frá samningi
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 hefur neytandi rétt til að falla frá fjarsölusamningi innan 14 daga frá móttöku vöru.
Til að nýta rétt sinn þarf neytandi að senda skýra yfirlýsingu um ákvörðun sína innan frestsins, t.d. með tölvupósti.
Neytandi þarf ekki að gefa ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
Neytandi hefur síðan 14 daga frá því að tilkynning um fall frá samningi er send til að skila vörunni. Skjal sem hægt er að fylla út og senda:
Krista Design endurgreiðir allar greiðslur sem hafa borist vegna vörunnar, þar á meðal afhendingarkostnað samkvæmt lögum, innan 14 daga frá því að tilkynning um fall frá samningi berst. Heimilt er að fresta endurgreiðslu þar til varan hefur borist til baka eða neytandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send.
Neytandi ber aðeins ábyrgð á verðrýrnun vöru sem rekja má til meðferðar umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli, eiginleika og virkni hennar.
5. Gallaðar vörur
Komi galli í ljós á vöru skal neytandi tilkynna Krista Design um gallann innan hæfilegs tíma eftir að hans verður vart.
Samkvæmt lögum um neytendakaup getur neytandi átt rétt á:
viðgerð,
nýrri vöru,
afslætti,
riftun kaupa,
skaðabótum eftir atvikum.
Réttur neytanda vegna galla getur gilt í allt að tvö ár frá afhendingu vöru eða allt að fimm ár þegar um er að ræða vörur sem ætlaðar eru til verulega lengri endingar.
6. Persónuvernd
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir og veita þjónustu samkvæmt gildandi persónuverndarlögum.
7. Ágreiningur og kæruleiðir
Komi upp ágreiningur milli neytanda og Krista Design er leitast við að leysa málið með samkomulagi.
Neytendur geta einnig leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kærunefndar:
kvth.is
Vefverslunin er rekin af Augljos auglýsingastofa ehf, netfang: mariakrista@mariakrista.com
Afhending vöru:
Hægt er að nálgast vörur í vefverslunina í Hafnarfirði skv samkomulagi hafið samband í 6901756 eða á netfanginu: mariakristahreidarsdottir@gmail.com
Sendingarmöguleikar Dropp
Hægt er að fá vöruna senda gegn greiðslu sendingarkostnaðar:
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.
Afhendingartími
Afhendingartími er miðaður við 2–7 virka daga eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.
Öryggi
Það er öruggt að versla í netverslun Augljóss auglýsingastofu, Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Teya.
Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhendar til þriðja aðila.
Greiðslumöguleikar
Í netverslun Augljóss auglýsingastofu ehf er boðið upp á 3 greiðsluleiðir;
1. Með greiðslukorti eða debetkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya.
2. Með millifærslu á reikning 544-26-84344 kt. 460105 -2260 innan klukkutíma frá því að varan er pöntuð. Ef ekki er millifært fyrir vörunni og staðfesting send á mariakrista@mariakrista.com þá eyðist pöntunin sjálfkrafa og varan fer aftur í sölu.
3. Hægt er að greiða með Netgíró.
Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.
Greiðslukort
Mögulegt er að greiða pöntun með öllum helstu debet- og kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Teya.
Augljós auglýsingastofa ehf
Brúsastaðir 2, 220 Hafnarfjörður
Sími: 6901756
Netfang: mariakrista@mariakrista.com
Vefsíða: www.mariakrista.com
kt 460105-2260
Vsk nr: 85285
Augljós auglýsingastofa fer eftir lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu 30/2002
Upplýsingar um félagið úr fyrirtækjaskrá Smelltu hér