UM KRISTU

 

Krista Design er lítið fyrirtæki sem rekið er af hjónunum Maríu Kristu Hreiðarsdóttur og Berki Jónssyni.


María Krista er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Ísland og einnig útskrifuð úr iðnhönnun úr iðnskólanum í Hafnarfirði. Börkur er menntaður vélfræðingur. Hjónin eiga 3 börn og 2 barnabörn og búa í fallegu húsi í Hafnafirði sem horfir yfir sjóinn. Þau hafa verið að gera upp húsið síðastliðin ár og má fylgjast með framkvæmdunum á instagramreikningnum: kristaketo

Handverk og hönnun hefur lengi verið áhugamál hjá þeim hjónum og finnst þeim sérstaklega gaman að hanna nytjahluti og skrautmuni úr efnum sem eru óvenjuleg og ekki er verra ef að þau eru endurnýtt á einhvern hátt.


Krista Design framleiðir skart sem og margskonar gjafa- og heimilisvöru en vöruúrvalið er ansi viðamikið. Fyrirtækið hefur notið aukinna vinsælda frá stofnun og farið frá því að vera með lítið gallerí í bakgarðinum ásamt sölu í fjölmörgum verslunum um land allt í eigin verslunarrekstur Systra og maka með tilheyrandi stækkun og vöruaukningu. Í dag hefur Krista minnkað yfirbygginguna og rekur fjölbreytta netverslun.  Úrvalið hefur breyst aðeins síðustu árin og nú má einnig nálgast húðvörur frá Nuskin og sérhannað skart Kristu á vefversluninni ásamt skemmtilegri gjafavöru eins og ostaboxinu vinsæla frá easycheese sem slegið hefur í gegn hjá landanum. 


Þau hjónin sjá um alla framleiðslu sjálf og reka eigið verkstæði og vinnustofu. Verandi foreldrar þriggja hafa þau lært að hagræða tíma sínum vel en tímalaus hönnun þeirra hjóna nýtur um leið góðs af. Fyrir utan þennan rekstur skrifaði María Krista einnig uppskriftarbókina Brauð og eftirréttir Kristu sem að einblínir á sykur-, hveiti- og glútenlausar uppskriftir. Bókin varð að veruleika í kjölfarið af matarbloggi Maríu Kristu en það má finna hér: 

Þar fyrir utan eru þau hjón miklir dýravinir og búa 5 kettir og einn hundur á heimili þeirra í sveitinni ásamt nokkrum hænum, hana og gullfisknum Newman.


Sjón er sögu ríkari en það er víst að eitthvað er fyrir alla frá Kristu Design!