Nýjar vörur

Lyklabær

Lyklabær er ný viðbót hjá Kristu Design. Krista fékk nefninlega fleiri enn eina fyrirspurn um að útbúa einhversskonar lyklasnaga og eins og hún er lítið hrifin af lyklum í allra augnsýn þá fannst henni þetta ákveðin áskorun, að gera eitthvað fallegt undir blessaðar lyklakippurnar. Eftir nokkra hugsun þá varð úr þessi sæti burstabær en hann minnir mann óneitanlega á fjölskylduna og heimilið. Snaginn getur einnig nýst undir margt annað eins og viskastykki, handklæði, töskur eða hvað sem er.

Snaginn er stíft mál 28.5cm á breidd og honum fylgja tappar sem lyfta honum 2 cm frá vegg.Snaginn er úr húðuðu áli og kemur í svörtu. Festist með 2 skrúfum á einfaldan hátt.