Maja og sængurkrílin

Fyrir 33 árum þá skrifaði ég þessa sögu handa elstu dóttur minni Mekkín. Hún lá í skúffu þar til núna því útgefendur hjá Ævintýri.is buðu mér að gefa hana út.

Ég hef eignast 4 barnabörn síðan sagan varð fyrst til og langaði mig að aðlaga hana að nútímanum og ört stækkandi veröld sem er bæði spennandi og flókin í senn.

Með því að kenna ungum okkar á skemmtilegan hátt að anda sig í gegnum ýmis konar líðan þá getur lífið orðið einfaldara. Svo eru nokkrir umræðupunktar í bókinni sem gætu verið hjálplegir fyrir okkur fullorðna fólkið að ræða um við börnin. Eins getum við sem eldri erum mögulega nýtt okkur slökunaræfingarnar í leiðinni og breytt okkur í soðið spagettí.

Með bestu kveðju, María Krista Hreiðarsdóttir, höfundur! Vá hvað það er spennandi að skrifa, höfundur.

 

"Maja á fimm ára afmæli og fær sæng í afmælisgjöf frá Kidda frænda. Ekki beint spennandi gjöf … þar til nóttin kemur. Þegar Maja getur ekki sofnað af því að hausinn er á fullu vakna sængurkrílin: Hugi, Dreyma, Örvi, Uggi, Pirri og Glóa – lítil loðin kríli sem eru alveg eins og tilfinningarnar okkar.

Hvert kríli kennir Maju æfingu sem hjálpar þegar hugurinn ærslast: blómaöndun, blöðruöndun, kanínuöndun, sofandi björn, skjaldbökuöndun og spagettíæfinguna hennar ömmu. Einföld verkfæri sem börn geta gripið til þegar þau eru æst, pirruð, hrædd eða eiga erfitt með að róa sig.

Í bókinni eru líka felumyndir þar sem krílin fela sig og aftast er farið yfir hvaða tilfinningu hvert kríli stendur fyrir."