Nýjar vörur

Bindisnæla Frón

Bindisnælan Frón er komin aftur í sölu en nælurnar voru mjög vinsælar hér um árið áður hjá Kristu og höfum við nú hafið framleiðslu á þeim á ný. Þær henta í margvíslegar gjafir, jóla, afmælis, útskriftar og fermingargjafir svo eitthvað sé nefnt og er eins og nafnið gefur til kynna næla fyrir bindið. Það er smart að sjá fallegar bindisnælur á flottum bindum og gaman að sjá fleiri skarta slíku skarti við góð tilefni. 

 

Nælan eru úr ryðfríu stáli og eru um 5 cm í þvermál í heild, Frón er um 3 cm í þvermál.