Nýjar vörur

Ostabakarinn = Bosk

Ostapotturinn frá Boska er einstaklega huggulegur og þægilegur í notkun. Hann er hannaður sérstaklega með osta á borð við Camebert í huga. Bakaður osturinn hentar fullkomlega sem forréttur, eftirréttur, í saumaklúbbinn eða hvenær sem er þegar þú vilt njóta. Potturinn er úr keramik og með fylgir standur úr steypujárni, kerti og uppskriftir. Pottinn skal hita fyrst í ofni en kertið viðheldur síðan hita meðan notið er. Má fara í uppþvottavél.

Athugið þvottaleiðbeiningar:

Potturinn og lokið mega fara í uppþvottavél. En steypujárnsstandurinn má ekki fara í uppþvottavél.

Efni:

Potturinn er úr keramik en standurinn úr steypujárni