Nýjar vörur

Þjóðbúningakort 4 í pakka

 

Þjóðbúningakortin hafa slegið í gegn í mörg ár og voru einstaklega vinsæl í versluninni Systur&Makar þegar við systur rákum hana saman. Síðan kom smá pása í kortagerðinni sökum anna en nú hef ég gert nýtt upplag af kortunum.

Þau eru prentuð á fallegan pappír og eru í mörgum litum. Ég sel þau saman 4 í pakka í blönduðum litum. Stykkið er á 1500 en pakkinn með 4 kostar 5000.- svo það er smá pakkadíll í gangi.

Kortin koma í kassa með umslögum og tilvalin að eiga í gjafaskápnum.